Jæja drengir, takk fyrir síðast. Þetta var fínasta skemmtun, held að starfsfólkið á Bistro hafi fagnað vel og lengi þegar við kláruðum að éta þar. Barinn var líka góður þó þegar fór að líða að miðnætti hafi ég ekki þekkt nema helminginn þarna.
Sævar, hvernig gekk rafmagnsfræðin hjá þér þarna? Snúruveseni í klukkutíma, haha! 
Dauði Rauði var líka nokkuð syfjaður þarna undir lokin...verst að ná ekki mynd af því.
Steinar, a.k.a. daddy cool ætlar sér greinilega að vera harði pabbinn, með rettuna bak við eyrað. Hætti maður þessu "svalur-með-rettu-bak-við-eyrað" dæmi ekki eftir busaballið í Fsu? Áúúú...
Hérna er mynd af Lindu og Sæva, alveg úrvinda eftir að hafa verið að rafvirkjast. Næst þegar þú rakar þig þá skora ég á þig að skilja mottuna eftir...

Sindri ældi ofan í glasið sitt og drakk það aftur. Gerði þetta til að spara ferðirnar á barinn, þessir vísindamenn eru sniðugir.

Kondan var hress...
Steinar með mömmunum, ef þetta verða bæði strákar þá legg ég til að þið skírið þá Daði Ari og Ari Daði. Það klikkar ekki!

Hvað er Ari með margar hendur á þessari mynd?
Þarna er Dauði Rauði líka enn á lífi ásamt stelpunum.
Takk fyrir gott kvöld pungar...